Light Fantastic – mjúkt vax fyrir ljósa liti

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , ,

Lýsing

 

Enginn litur, hvítt býfluguvax og tveir dropar af kókosolíu… ljós hráefni fyrir ljóst vax fyrir ljósa liti… meikar sens, er það ekki?

Það er meira að segja mun fínna malað T1 carnauba sem er ljósara en vanalega. Og það er farið fram á að tæknimennirnir sem búa vaxið til sé í hvítum sloppum þegar þegar þeir blanda það. Í hvítu herbergi. Hlustandi á hvítu plötuna með Bítlunum. Ekki furða að vaxið passi ljósu lakki best, hvítum, silfruðum og ljósgráum.

Önnur umferð æskileg á 2-3 mánaða fresti.

Hart vax vs mjúkt vax – Hvort er fyrir þig? Þrátt fyrir að flest bónin okkar hafi staðlaða áferð, þá eru sum bónin harðari eða mýkri en vanalega. Mjúk vöx er einfaldara að bera á með lófanum eða puttunum. Hörð vöx eru oftast fljótari að þorna á bílnum og dollan endist yfirleitt betur, því það er ólíklegra að maður beri of mikið á. Bæði mjúk og hörð vöx innihalda svipað magn af carnauba og býfluguvaxi og virka álíka vel. Þetta ræðst yfirleitt á persónulegri skoðun – það er engin rétt eða röng vax áferð, bara hvort þú fílar betur.